Er þetta ekki í Bliki?

16.03.2011
Málþing til heiðurs Þorsteini Þ. Víglundssyni
laugardaginn 26. mars kl 14 - 16:30
Er þetta ekki í Bliki?

Í mars 2011 eru 75 ár liðin frá því Þorsteinn Þórður Víglundsson hóf göngu Bliks,
merkasta menningarrits úr Vestmannaeyjum. Af því tilefni mun Sögusetur 1627 og
Bókasafn Vestmannaeyja standa fyrir málþingi til heiðurs Þorsteini.
 
 
Dagskráin verður í Einarsstofu, anddyri Safnahúss og hefst kl. 14 
laugardaginn 26. mars og áætlað að henni ljúki um kl. 16:30.

Dagskráin verður auglýst síðar, en meðal efnis má nefna að vinir og samstarfsmenn
minnast Þorsteins, kynning verður á Bliki á heimaslóð, myndasýning úr Bliki, fjallað
um fyrirhugaðar breytingar á Byggðasafninu, upplestur o.fl.
 
Allir hjartanlega velkomnir.
 


 

Undirbúningsnefndin