Móttaka fyrir "Örnen"
21.04.2006Móttaka var á Byggðasafni Vestmannaeyja í gær fyrir leikara og tökulið danska myndaflokksins "Örnen", sem hefur hlotið gríðarlegra vinsælda. Verið er að kvikmynda síðustu þættina á Íslandi og hófust tökur hér í Eyjum á miðvikudag. Hér á ljósmyndinni er Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona í þættinum og hún er fædd og uppalin hér í Eyjum. Með henni á myndinni er Jens Albinus sem leikur aðallhlutverkið Hallgrim, sem á að vera frá Eyjum í þættinum.