Sjómenn og hjátrú

31.03.2006

Fimmtudagskvöldið 30. mars var dagskrá á Byggðasafni Vestmannaeyja í tengslum við sýninguna 100 ára  Vélbátaútgerð í Vestmannaeyjum.  Fluttur var fyrirlestur undir yfirskriftinni Sjómenn og Hjátrú í umsjón Hlífar Gylfadóttur, safnvarðar.
Fjallað var stuttlega um hina ýmsu siði og venjur tengda sjómönnum og sjósókn, afladrauma og fyrirboða.
Skemmtilegar umræður sköpuðust um efnið meðal áheyrenda eftir að fyrirlestri lauk og kom þar margt fróðlegt fram.