Öskudagur 2006 í Safnahúsi

02.03.2006

Mörg börn lögðu leið sína í Safnahúsið á Öskudaginn og sungu ýmiss lög fyrir starfsmenn safnsins og fengu góðgæti að launum. Börnin voru í ýmsum gervum eins og alltaf en nú var nýjasta gervið að sjálfsögðu Sylvía Nótt og hér er mynd af henni Kristínu Eddu sem söng lagið af mikilli innlifun.