Afkomendur Einars Sigurðssonar útgerðarmanns og Svövu Ágústsdóttir, konu hans gáfu einnig Vestmannaeyjabæ brjóstmyndir af þeim í gær 7. febrúar.

08.02.2006

Í gær 7. febrúar gáfu afkomendur Einars Sigurðssonar útgerðarmanns og Svövu Ágústsdóttir, konu hans, einnig Vestmannaeyjabæ brjóstmyndir af Einari og Svövu.

Þær voru afhentar við hátíðlega athöfn á Byggðasafni Vestmannaeyja kl. 14.00 í gær.
Brjóstmyndirnar er úr bronsi og eru eftir Sigurjón Ólafsson myndhöggvara. Hér sjáum við ljósmynd af brjóstmyndunum.