Bátslíkön gefin á Byggðasafnið

02.02.2006

Fyrir skömmu barst Byggðasafni að gjöf tvö bátslíkön smíðuð af Einari Guðmundssyni frá Málmey. Ættingjar Einars gáfu safninu líkönin.  Þau eru af nýsköpunartogaranum Bjarnarey VE 11 og Helgafelli VE 32. Það er mjög ánægjulegt fyrir safnið að fá þessi bátslíkön þar sem að ekki var til líkan af nýsköpunartogara eins og Bjarnarey á Byggðasafni .

Gefendum eru færðar bestu þakkir fyrir .
Safnvörður Byggðasafns .