Goslokahátíðin 2019

Viðar Breiðfjörð - Lífsviljinn og lífsgleðin í myndum mínum

 

 

Bæjarlistamaður Vestmannaeyja árið 2019, Viðar Breiðfjörð sýnir verk sín í Cratious-krónni á Skipasandi og verður sýningin opnuð klukkan 20.00 á fimmtudagskvöldið. Verkin á sýningunni hefur Viðar unnið á síðustu tveimur árum auk verka sem hann hefur unnið í sumar.

 

 

„Mín myndlist eru þakkir fyrir að vera á lífi,“ sagði Viðar sem var staddur á Þórshöfn á Melrakkasléttu á leið sinni um landið þegar rætt var við hann. „Ég hef lent í slysum og oftar en einu sinni verið nálægt því að deyja. Hef sloppið og fyrir það er ég óendanlega þakklátur. Lífsviljinn og lífsgleðin er það sem endurspeglast í myndum mínum.“

 

 

Myndefnið sækir hann víða en þó eru þrjú stef í sýningunni. „Það er sería af húsamyndum sem ég kalla Í húsum hæf, nokkrar abstraktmyndir og uglumyndir  sem eru innblásnar af samskiptum mínum við mannlífið.“

 

 

Viðar er fæddur 31. maí árið 1962 á Húsavík. Hann fluttist til Vestmannaeyja árið 1983 og hefur búið hér og starfað æ síðan.

 

„Náttúra Vestmannaeyja hefur verið honum innblástur í listsköpun sinni og skildi þá engan undra. Verk hans eru bæði olíumálverk, vatnslitaverk auk teikninga og beitir Viðar „blandaðri tækni“. Hann er vandvirkur, tekur sér tíma til þess að klára verk sín og hefur mörg járn í eldinum ef svo má segja, en hann vinnur við mörg verk samtímis,“ sagði Njáll Ragnarsson, formaður bæjarráðs þegar hann tilkynnti val ráðsins á Bæjarlistamanni Vestmannaeyja 2019 í vor.

 

„Ævistarf hans er fyrir löngu orðið samofið myndlistarlífi Vestmannaeyja og ástríða hans fyrir myndlist er virðingarverð. Viðar auðgar menningarlíf okkar Eyjamanna svo um munar og er því vel að þessari viðurkenningu kominn,“ sagði Njáll einnig.