Henson – Ljúf sumur hjá ömmu og afa í Eyjum

 

 

„Þegar ég var peyi sem flaug með Þristinum til Vestmannaeyja á vorin og til baka þegar halla tók sumri sem tók þrjátíu mínúntur þá flögraði ekki að mér að ég ætti eftir að fara víða um heiminn í tengslum við framleiðslu og viðskipti,“ sagði Halldór Einarsson, oft kenndur við Henson og er löngu orðinn þjóðþekktur sem knattspyrnumaður, íþróttafrömuður og frumkvöðull. Hann var með í jólabókaflóðinu í ár með bók sína, Stöngin út og kynnti hana í Eldheimum föstudagskvöldið 15. nóvember.

Halldór á ættir að rekja til Eyja og var hjá ömmu sinni og afa á sumrin. Eignaðist hér góða vini og góðar minningar. „Í þann tíð var lítið talað um útlönd og eini peyinn sem ég man eftir að talaði um útlönd var Geir Vippi. Sjóndeildarhringurinn var ekkert stærri en þörf var á og ef einhver þurfti að hreyfa sig þá fór viðkomandi suður hvernig sem sá frasi varð til.

 

Eyjarnar buðu upp á allt, fegurð, fótboltavöll, Andrés blinda sem bjó til fyrir okkur teygjubyssur og yndislega ömmu og afa sem var alltaf í vinnunni og vildi ekki að ég færi að bera út Þjóðviljann en var samt frábær.

 

Stebbi Pól var vinur afa og þeir fengu sér stundum í staupinu og afi fór ekki að reykja fyrr en hann var hættur að vinna. Vatnið af þakinu fannst mér ekkert sérstaklega gott og mér fannst mjólkin sem ég náði í á brúsapallinum neðar á Skólaveginum og kom frá Grundarbrekku missa fljótt góða bragðið áður en ísskápurinn kom til sögunar. Ég hlakka til að mæta í Eldheima í kvöld og deila með Eyjamönnum nokkrum brotum af rússíbana lífs míns,“ sagði Halldór sem er með skemmtilegri mönnum.

 

Í bókinni lítur hann yfir litríkan feril sem einkennst hefur af miklum sveiflum og stórkostlegum ævintýrum í viðskiptum og knattspyrnu, hérlendis og erlendis.
Bókin, STÖNGIN ÚT var að sjálfsögðu til sölu á staðnum – Halldór las, áritaði og spjallaði við gesti.

 

Arnór og Helga hituðu upp með fáeinum þekktum perlum síðustu aldar.
Kynning bókarinnar er liður í Safnahelginni, sem í ár, dreifist af ýmsum ástæðum, yfir nokkrar helgar.