100 ára kaupstaðarafmæli – Allt á einum stað

 

 

Þann 1. janúar sl. voru hundrað ár frá því að Vestmannaeyjar fengu kaupstaðarréttindi og verður þess minnst með ýmsum hætti út afmælisárið með fjölbreyttri dagskrá sem þegar er hafin. Má þar nefna sýningu á verkum Kjarvals í eigu bæjarins á nýársdag, frímerkjasýningu helgaða Vestmannaeyjum 7. febrúar, hátíðarfund bæjarstjórnar 14. febrúar og sýningu á verkum grunnskólabarna sem skoða sögu Eyjanna á sinn hátt sem opnaði daginn áður. Þá má ekki gleyma bæjarstjórnarfundi unga fólksins sem heppnaðist mjög vel. Heldur ekki málþinginu Nútíð, fortíð og framtíð Vestmannaeyja, tækifæri og ógnanir þar sem fimm frábærir fyrirlesarar skoðuðu stöðu Eyjanna og hvaða möguleika við eigum. Og möguleikarnir eru margir.

Áfram verður haldið en til að koma þessu öllu til skila hefur verið opnuð gátt á vestmannaeyjar.is þar sem greint verður frá því sem fram undan er sem og ýtarlega greint frá hverjum lið fyrir sig. Sumt er þegar að finna inni á heimasíðunni en nú verður þetta allt á einum stað. Er þetta hugsað fyrir áhugasama og ekki síður fyrir kynslóðir framtíðarinnar til að glugga í þegar saga Eyjanna er skoðuð og rifjuð upp.

Auk þess verður safnað saman tenglum sem tengjast viðburðum afmælisársins.

 

Bæjarstjórn Vestmannaeyja á afmælisárinu: Helga Kristín Kolbeins, Trausti Hjaltason, Njáll Ragnarsson, Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri, Hildur Sólveig Sigurðardóttir, Jóna Sigríður Guðmundsdóttir og Elís Jónsson.

 

Samantekt: Ómar Garðarsson

 

Ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson, Ómar Garðarsson

Kvikmyndir: Halldór B. Halldórsson

Netvinnsla: Viktor Pétur Jónsson

 

Ráðstefnustjóri hátíðarfunds og málþings: Sara Sjöfn Grettisdóttir